Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, meiddist í tapi Vals gegn KR í Mjólkurbikarnum í gær. Hann fann strax að eitthað var að og gaf samstundis merki um skiptingu.
Hann meiddist á ökkla og samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net er ekkert brotið eða slitið en hann verður þó frá í einhvern tíma.
Hann meiddist á ökkla og samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net er ekkert brotið eða slitið en hann verður þó frá í einhvern tíma.
„Þetta er ekkert endanlega komið í ljós en eins og fólk sá þá verða þetta einhverjar vikur. Það er ekki komin nákvæm greining en þetta verður einhverjar vikur," segir Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, en hann ræddi við Fótbolta.net í dag.
Þetta er mikið högg fyrir Valsmenn sem voru búnir að vera að bíða eftir að Jónatan kæmi af meiðslalistanum. Hann kom af bekknum gegn KR en fór stuttu seinna meiddur af velli.
Valur á leik gegn Þór í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á sunnudag en lykilmenn á borð við Kristin Frey Sigurðsson og Patrick Pedersen eru á meiðslalistanum og talsvert í að þeir snúi aftur.


