Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Wirtz hefur trú á Slot
Florian Wirtz
Florian Wirtz
Mynd: EPA
Wirtz hefur trú á Slot
Wirtz hefur trú á Slot
Mynd: EPA
Florian Wirtz, leikmaður Liverpool, segir leikmannahópinn enn hafa trú á hollenska stjóranum Arne Slot.

Þjóðverjinn mætti á fréttamannafund fyrir leikinn gegn Paris Saint-Germain og lýsti þar yfir stuðningi við Slot.

Líklega ekki annað hægt enda var Slot í sama herbergi að bíða eftir að geta rætt við fjölmiðla.

Þessir tveir leikir gegn PSG gætu verið mikilvægustu leikir Slot sem er sagður sitja í heitu sæti. Wirtz trúir því að Slot sé rétti maðurinn til að leiða liðið áfram.

„Já, að sjálfsögðu. Við höfum trú á honum og það er bara sjálfsagt eftir að hafa unnið deildina á síðasta ári. Við höfum átt marga góða leiki en hefðum viljað gera betur. Það er enn eitthvað til að spila um og við höfum trú á stjóranum,“ sagði Wirtz.

Wirtz kom til Bayer Leverkusen frá Liverpool fyrir 116 milljónir punda á síðasta ári og tók smá tíma að finna taktinn en hefur nú komið að fimmtán mörkum í öllum keppnum. Hann hefur þó átt nokkra hauskúpuleiki eins og margir aðrir í liðinu.

„Við hefðum viljað átt betra tímabil eða svona fram að þessu, en við erum enn í Meistaradeildinni og í baráttu um að komast í keppnina á næsta tímabili. Það eru nokkur markmið.“

Hann segist spenntur fyrir leikjunum gegn Paris Saint-Germain og að þetta væri stór partur af ástæðunni fyrir því að hann gekk í raðir Liverpool, var til að spila í deild þeirra bestu.

„Auðvitað eru þetta leikirnir sem maður dreymdi um að spila þegar maður samdi við félagið. Enska úrvalsdeildin er erfið deild þar sem allir geta unnið alla, en Meistaradeildin er önnur skepna,“ sagði hann ennfremur.
Slapp
banner