Átta-liða Meistaradeildar Evrópu hófust í gær og halda áfram í kvöld með tveimur áhugaverðum leikjum.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Gylfi Tryggvason
Barcelona 3 - 1 Atletico Madrid
Alltaf einhver þvæla þarna á Nou Camp. Atletico er ekki með lið sem getur læst þessum fyrri leik. Fyrir 10 árum væru þeir að klára þetta á hugarfarinu sínu. En nú er þetta Barcelona 100%.
PSG 3 - 0 Liverpool
PSG eru bara miklu miklu miklu betri. Varla að ég hafi það í mér að horfa á þennan leik. En ef einhver getur sett upp leikinn þannig að Liverpool eigi séns er það Arne Slot. You’ll never walk alone. Kvaratskhelia klárar þetta.
Óskar Smári Haraldsson
Barcelona 3 - 0 Atletico Madrid
Hér ætla bæði vinsælasti körfuboltaþjálfari landsins og GT að standa undir nafni og vera sniðugir. Þeir verða með einhverja snilld um að Atletico séu að fara gera eitthvað í þessum leik. Það er aldrei að fara gerast. Aldrei. 3-0, eins sannfærandi og það verður og Raphinha mun stýra sýningunni sem Barca setur upp í kvöld.
PSG 1 - 2 Liverpool
Þegar þú ert með svona stórt og gott forskot að þá leyfirðu þér að láta tilfinningar stýra ferðinni í einum leik. Liverpool hafa verið bara ógeðslega lélegir undanfarið og það er staðreynd. Hins vegar ætla ég að spá því að skyndisóknir ásamt föstu leikatriði munu gera gæfumuninn og Salah skorar úr vel útfærðri skyndisókn. PSG jafna en Virgil Van Djik mun skora late winner eftir hornspyrnu.
Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Barcelona 1 - 1 Atletico Madrid
Þessi lið þekkja hvort annað vel sem þýðir að leikurinn endar með jafntefli þannig að allt verður opið fyrir seinni leikinn. Atletico Madrid ná forystu með marki frá Alvarez en Barcelona svarar því stuttu síðar með marki frá Lewandowski.
PSG 2 - 1 Liverpool
PSG verða sterkari á heimavelli og ná að landa sigri í þessum leik. Þeir eiga eftir að leiða 2-0 í hálfleik þar sem Dembele skorar bæði mörkin en Van Dijk skorar seint í leiknum sem heldur Liverpool inni í einvíginu fyrir seinni leikinn.
Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 25
Fótbolti.net - 19
Gylfi Tryggva - 19


