Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 19:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Barcelona niðurlægði Newcastle
Raphinha fagnar marki í leiknum.
Raphinha fagnar marki í leiknum.
Mynd: EPA
Robert Lewandowski og Lamine Yamal.
Robert Lewandowski og Lamine Yamal.
Mynd: EPA
Barcelona 7 - 2 Newcastle
1-0 Raphinha ('6 )
1-1 Anthony Elanga ('15 )
2-1 Marc Bernal ('18 )
2-2 Anthony Elanga ('28 )
3-2 Lamine Yamal ('45 , víti)
4-2 Fermin Lopez ('51 )
5-2 Robert Lewandowski ('56 )
6-2 Robert Lewandowski ('61 )
7-2 Raphinha ('72 )

Eftir að hafa verið betri aðilinn í fyrri leik liðanna á Englandi, þá átti Newcastle lítinn möguleika gegn Barcelona í kvöld.

Um var að ræða seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og fór hann fram í Katalóníu. Leikurinn byrjaði mjög fjörlega og tóku heimamenn forystuna tvisvar á fyrsta hálftíma leiksins, en tvisvar svaraði Anthony Elanga og jafnaði.

Ungstirnið Lamine Yamal sá til þess að Barcelona fór með forystuna inn í hálfleikinn. Hann fékk dauðafæri til að skora stuttu eftir að uppbótartíminn byrjaði en setti boltann einhvern veginn yfir. Barcelona fékk hins vegar vítaspyrnu stuttu síðar eftir að Kieran Trippier var brotlegur. Yamal fór á vítapunktinn og bætti þá upp fyrir klúðrið.

Í seinni hálfleiknum brotnaði Newcastle og lék Barcelona á als oddi. Fermin Lopez skorai á 51. mínútu og á næstu tíu mínútum bætti Robert Lewandowski við tveimur mörkum. Raphinha skoraði sjöunda mark Barcelona og annað mark sitt á 72. mínútu.

Lokatölur 7-2 og Barcelona vinnur því einvígið samanlagt 8-3. Erfitt kvöld fyrir þá stuðningsmenn Newcastle sem lögðu leið sína til Barcelona.

Barcelona mun mæta annað hvort Atletico Madrid eða Tottenham í 8-liða úrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner