Eftir að fótboltaferlinum lýkur þá fara flestir leikmenn út í þjálfun, stjórnunarhlutverk eða umboðsmennsku. Bacary Sagna, fyrrum leikmaður Arsenal og Manchester City, hefur hins vegar tekið sig til og gefið út smáforrit.
Sagna, sem er 43 ára gamall, hefur þróað forritið í fimm ár núna og segir það vera tilbúið.
Sagna, sem er 43 ára gamall, hefur þróað forritið í fimm ár núna og segir það vera tilbúið.
Forritið notar gervigreind til að finna fótboltamenn og koma þeim samband við atvinumannafélög.
„Ég hef séð mörg hæfileikarík börn sem hafa þjáðst vegna þessu að þau voru ekki fundin, svo ég hef unnið að þessu verkefni í fimm ár og það er tilbúið núna," segir Sagna.
„Með gervigreind getum við fengið gögn og búið til skýrslur um börnin og borið saman leikmenn, jafnvel frá unga aldri."
„Þú getur gert svo margt og þetta er mjög spennandi tími. Vonandi hjálpar þetta mörgum.“
Sagna lagði skóna á hilluna árið 2019 og reynir núna að lifa rólegu lífi. „Ég varð að finna lífið aftur eftir að ég hætti. Þegar maður spilar á svona háu stigi þá fær maður engan frið. Þess vegna bý ég í Dúbaí núna þar sem fólk veit ekki hver ég er. Ég þurfti að stíga til baka og finna líf mitt aftur. Ég þurfti að verja tíma með börnunum mínum," segir Sagna.
Athugasemdir




