Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 09:40
Elvar Geir Magnússon
Vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd
Powerade
Marcus Rashford.
Marcus Rashford.
Mynd: EPA
Sandro Tonali.
Sandro Tonali.
Mynd: EPA
Manchester United er áberandi í slúðurpakkanum, eins og oft áður. Það er BBC sem tekur saman það helsta sem er til umfjöllunar í ensku götublöðunum og víðar.

Barcelona mun reyna að fá Marcus Rashford (28) aftur lánaðan frá Manchester United á næsta tímabili, til að forðast að borga 26 milljónir punda fyrir kaup. (Daily Mail)

Manchester United gæti reynt að fá nígeríska miðjumanninn Wilfred Ndidi (29), fyrrum leikmann Leicester, frá Besiktas og tyrkneski markvörðurinn Altay Bayindir (27) gæti farið öfuga átt. (SporX)

Borussia Dortmund telur sig geta fengið Jadon Sancho (25) til sín í þriðja sinn. Sancho er hjá Aston Villa á láni frá Manchester United. (Times)

Manchester United hefur staðfestan áhuga á ítalska miðjumanninum Sandro Tonali (25) en Newcastle vill fá yfir 100 milljónir punda ef félagið selur hann. (The i)

Juventus hefur verið sagt að félagið geti keypt hollenska framherjann Joshua Zirkzee (24) frá Manchester United fyrir um 22 milljónir punda. Félagið er einnig tilbúið að ræða lánssamning með möguleika á kaupum. (Tuttosport)

Newcastle vill fá senegalska miðjumanninn Lamine Camara (22) en hann gæti yfirgefið Mónakó í sumar. (Football Insider)

Newcastle hefur einnig áhuga á franska markverðinum Robin Risser (21) hjá Lens. (Sky Sports Sviss)

West Ham ætlar að ræða við Chelsea um kaup á franska varnarmanninum Axel Disasi (28) sem er á láni hjá félaginu. (Football Insider)

Chelsea og Tottenham eru á eftir sóknarmanninum Fisnik Asllani (23), leikmanni Hoffenheim og Kósovó. (Bild)
Athugasemdir
banner