PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 21:05
Ívan Guðjón Baldursson
Sandra byrjaði í naumu tapi - Brynjar datt úr byrjunarliðinu
Mynd: Köln
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Aðsend
Sandra María Jessen var á sínum stað í fremstu víglínu hjá Köln sem tapaði gegn Union Berlin í efstu deild þýska boltans í kvöld.

Sandra lék allan leikinn í naumu 2-1 tapi sem kemur sér afar illa fyrir evrópuvonir Kölnar, sem er sex stigum frá evrópusæti.

Í efstu deild í Sviss lék Bergrós Ásgeirsdóttir allan leikinn í lífsnauðsynlegum sigri hjá Aarau í fallbaráttunni. Bergrós og stöllur heimsóttu Luzern og stóðu uppi sem sigurvegarar, en þetta er fyrsti sigur liðsins eftir 14 umferðir á deildartímabilinu.

Aarau er með 6 stig, þremur stigum á eftir Luzern sem situr í öruggu sæti.

Brynjar Ingi Bjarnason fékk þá að spila síðustu mínúturnar í sigri Greuther Fürth í næstefstu deild þýska boltans.

Greuther vann gríðarlega dýrmætan 2-1 sigur á heimavelli gegn Arminia Bielefeld og kom Brynjar Ingi inn fyrir Jan Elvedi sem meiddist.

Brynjar byrjaði síðustu fjóra leiki Greuther í röð fyrir daginn í dag en liðið er í fallsæti, með 22 stig eftir 23 umferðir. Liðið var í botnsæti deildarinnar fyrir sigurinn í dag.

Í næstefstu deild í Hollandi töpuðu liðsfélagar Helga Fróða Ingasonar í liði Helmond á heimavelli gegn toppliði Den Haag. Helgi Fróði var ónotaður varamaður í liði Helmond sem er í neðri hluta deildarinnar með 32 stig eftir 28 umferðir.

Hlynur Freyr Karlsson var þá ekki í hóp þegar Brommapojkarna lagði IFK Skovde að velli í sænska bikarnum.

Í æfingaleikjum dagsins var Hilmir Rafn Mikaelsson í byrjunarliði Noregsmeistara Viking sem gerðu jafntefli Tromsö á meðan Ægir Jarl Jónasson var í byrjunarliði AB í jafntefli gegn Fremad Amager. Nóel Atli Arnórsson var að lokum í byrjunarliði AaB sem steinlá gegn Sandefjord.

Union Berlin 2 - 1 Köln

Luzern 2 - 3 Aarau

Greuther Fürth 2 - 1 Arminia Bielefeld

IFK Skovde 0 - 3 Brommapojkarna

Helmond 1 - 3 Den Haag

Tromsö 1 - 1 Viking

Sandefjord 4 - 0 AaB

Fremad Amager 1 - 1 AB

Hobro 0 - 0 Aarhus Fremad

Hilleröd 2 - 2 Lyngby

Brann 2 - 2 Sotra

Athugasemdir
banner
banner