Ensku stórveldin Manchester City og Chelsea heimsóttu Real Madrid og Paris Saint-Germain í risaslögum í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Man City fór til Madrídar og skoraði Federico Valverde þrennu í fyrri hálfleik á Santiago Bernabéu þar sem Nico O'Reilly réði engan veginn við hann.
Fyrsta markið skoraði Valverde eftir magnaða sendingu frá Thibaut Courtois. O'Reilly var í einskismannslandi og spretti Gianluigi Donnarumma einnig á móti boltanum, en Valverde var fyrri til. Hann potaði boltanum framhjá Donnarumma, sem hefði getað tekið hann með höndum en var líklega hræddur um að vera kominn útfyrir vítateiginn, og skoraði í autt mark til að taka forystuna.
Man City fékk sín færi í opnum fyrri hálfleik en tókst þó ekki að skora. Valverde tvöfaldaði forystuna eftir góða sendingu frá Vinícius Júnior og setti svo þriðja markið eftir stórkostlegt einstaklingsframtak eftir magnaða stoðsendingu frá Brahim Díaz. Allar sóknirnar fóru af stað frá Courtois og var boltinn ekki lengi að rata á hinn enda vallarins og enda í netinu í öll þrjú skiptin.
Pep Guardiola mætti til leiks með afar sóknarsinnað byrjunarlið en breytti um leikkerfi í hálfleik til að þétta miðjuna. Eftir það varð leikurinn afar tíðindalítill en bæði lið fengu þó dauðafæri til að skora. Fyrst braut Donnarumma á Vinícius Júnior innan vítateigs en varði svo vítaspyrnuna frá honum, áður en O'Reilly var næstum búinn að byrja að bæta upp fyrir hörmulegan fyrri hálfleik með marki - ef ekki fyrir mögnuð viðbrögð Courtois sem bjargaði í hornspyrnu.
Lokatölur urðu því 3-0 í Madríd og verður afar áhugavert að fylgjast með hvort City takist að vinna upp þennan mun á heimavelli.
Í París var fyrri hálfleikurinn gífurlega opinn og skemmtilegur. Liðin skiptust á að sækja og nýttu heimamenn færin sín betur. Bradley Barcola skoraði fyrst flott mark með skoti í slána og inn en Malo Gusto jafnaði metin áður en Ousmane Dembélé endurheimti forystuna með frábæru marki þar sem hann sýndi mikla yfirvegun til að skora.
Enzo Fernández jafnaði metin á ný eftir frábæran undirbúning frá Pedro Neto í síðari hálfleik en áfram héldu heimamenn að nýta hvert einasta tækifæri sem þeir fengu í nokkuð jöfnum slag.
Filip Jörgensen fékk tækifærið á milli stanga Chelsea og gerðist sekur um herfileg mistök á 74. mínútu sem endaði með marki frá Vitinha. Sending Jörgensen misheppnaðist og var staðan 3-2 allt þar til á lokakaflanum, þegar Khvicha Kvaratskhelia lét til sín taka.
Kvaratskhelia kom inn af bekknum og skoraði glæsilega tvennu á lokamínútunum. Fyrst skoraði hann eftir gæðamikið einstaklingsframtak á vinstri vængnum og svo eftir lága fyrirgjöf frá Achraf Hakimi, svo lokatölur urðu 5-2.
Heimsmeistarar Chelsea eiga því afar erfitt verkefni fyrir höndum sér í seinni leiknum gegn Evrópumeisturum PSG sem ætla að verja titilinn.
Að lokum vann norska liðið Bodö/Glimt stórkostlegan 3-0 sigur gegn Sporting frá Portúgal.
Öskubuskuævintýri Bodö/Glimt heldur því áfram en fyrir nokkrum mánuðum var ekki útlit fyrir að liðið ætti raunhæfa möguleika á að komast upp úr deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Liðið vann gegn Manchester City og Atlético Madrid í síðustu umferðunum til að vinna sér inn þátttökurétt í umspili Meistaradeildarinnar. Þar sló Bodö/Glimt ítalska stórveldið Inter úr leik og nú er röðin komin að Sporting.
Kasper Högh, fyrrum leikmaður Vals, var á sínum stað í byrjunarliðinu og skoraði þriðja markið í 3-0 sigri.
Real Madrid 3 - 0 Manchester City
1-0 Federico Valverde ('20 )
2-0 Federico Valverde ('27 )
3-0 Federico Valverde ('42 )
3-0 Vinicius Junior ('58 , Misnotað víti)
Paris Saint Germain 5 - 2 Chelsea
1-0 Bradley Barcola ('10 )
1-1 Malo Gusto ('28 )
2-1 Ousmane Dembele ('40 )
2-2 Enzo Fernandez ('57 )
3-2 Vitinha ('74 )
4-2 Khvicha Kvaratskhelia ('86 )
5-2 Khvicha Kvaratskhelia ('94 )
Bodo-Glimt 3 - 0 Sporting
1-0 Sondre Fet ('32 , víti)
2-0 Ole Blomberg ('45+1)
3-0 Kasper Hogh ('71 )
Athugasemdir



