Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 19:13
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Inter að stinga af eftir sjöunda sigurinn í röð
Mynd: EPA
Lecce 0 - 2 Inter
0-1 Henrikh Mkhitaryan ('75 )
0-2 Manuel Akanji ('82 )

Topplið Inter heimsótti fallbaráttulið Lecce í ítalska boltanum í dag og áttu lærlingar Cristian Chivu í miklum vandræðum með að koma boltanum í netið þrátt fyrir að vera talsvert sterkari aðilinn.

Federico Dimarco kom boltanum loks í netið í upphafi síðari hálfleiks en markið tekið af eftir athugun í VAR-herberginu vegna rangstöðu.

Inter hélt áfram að sækja og voru það tvær hornspyrnur sem björguðu liðinu, sem náði forystunni þegar boltinn datt fyrir Henrikh Mkhitaryan eftir hornspyrnu og skoraði hann með góðu skoti.

Sjö mínútum síðar stangaði Manuel Akanji aðra hornspyrnu í netið til að innsigla tveggja marka sigur.

Þetta er sjöundi sigur Inter í röð og er liðið með tíu stiga forystu sem stendur, með 64 stig eftir 26 umferðir.

Lecce er þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið. Þórir Jóhann Helgason var ónotaður varamaður í liði heimamanna.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner