Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 16:39
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Endurkomusigur hjá KR
Kvenaboltinn
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Haukar 2 - 3 KR
1-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('10)
1-1 Ragnheiður Ríkharðsdóttir ('40)
2-1 Ragnheiður Tinna Hjaltalín ('74)
2-2 Emma Björt Arnarsdóttir ('76)
2-3 Katla Guðmundsdóttir ('83)

Haukar og KR áttust við í eina leik dagsins í B-deild Lengjubikars kvenna og náðu heimakonur forystunni snemma leiks þegar Halla Þórdís Svansdóttir skoraði.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir jafnaði metin fyrir leikhlé og var staðan 1-1 þegar liðin mættu aftur til leiks í síðari hálfleik.

Ragnheiður Tinna Hjaltalín endurheimti forystuna fyrir Hauka á 74. mínútu en gestirnir úr Vesturbænum jöfnuðu fljótt. Þar var Emma Björt Arnarsdóttir á ferðinni svo staðan var 2-2 á spennandi lokakafla.

Sjö mínútum eftir jöfnunarmarkið skoraði Katla Guðmundsdóttir það sem reyndist sigurmark leiksins fyrir KR. Lokatölur 2-3 eftir flotta endurkomu á lokakaflanum.

KR er með sex stig eftir tvær umferðir en þetta var fyrsti leikur Hauka.
Athugasemdir
banner
banner
banner