Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. febrúar 2026 16:47
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Kane færist nær markametinu - Ísak spilaði síðustu mínúturnar í jafntefli
Harry Kane er sjóðandi heitur
Harry Kane er sjóðandi heitur
Mynd: EPA
Ísak Bergmann og félagar í Köln fengu gott stig gegn Hoffenheim
Ísak Bergmann og félagar í Köln fengu gott stig gegn Hoffenheim
Mynd: EPA
Harry Kane skoraði tvö mörk er Þýskalandsmeistarar Bayern München unnu 3-2 sigur á Eintracht Frankfurt í þýsku deildinni í dag og færist nær markameti Robert Lewandowski.

Aleksandar Pavlovic skoraði laglegt mark á 16. mínútu þar sem Kaua Santos hefði getað gert betur.

Harry Kane gerði 27. deildarmark sitt fjórum mínútum síðar er Josip Stanisic framlengdi fyrirgjöf Michael Olise á Kane sem skoraði, en Kane gerði síðan annað mark sitt hálftíma fyrir leikslok.

Hann er nú með 28 mörk og þrettán mörkum frá því að jafna markamet Robert Lewandowski. Kane hefur ellefu leiki til þess að jafna og bæta metið sem er vel gerlegt miðað við gírinn sem hann er í þessa stundina.

Það fór aðeins um Bayern á síðustu mínútunum. Frankfurt skoraði tvö mörk en lengra komst liðið ekki. Bæjarar eru á toppnum með 60 stig, níu stigum á undan Borussia Dortmund sem er í öðru sæti. Frankfurt er í 7. sæti með 31 stig.

Augsburg vann frábæran 3-2 endurkomusigur á Wolfsburg. Gestirnir skoruðu tvö mörk á lokamínútunum og komu sér upp í 10. sæti deildarinnar.

Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn á í uppbótartíma er Köln gerði 2-2 jafntefli við Hoffenheim á heimavelli. Góð úrslit hjá Köln, en Hoffenheim hafði aðeins tapað einum af síðustu átta í deildinni á tímabilinu.

Hoffenheim er í 3. sæti með 46 stig en Köln í 12. sæti með 24 stig.

Bayer Leverkusen tapaði fyrir Union Berlín, 1-0, í Berlín. Rani Khedira gerði sigurmarkið á 28. mínútu,

Leverkusen er í 6. sæti með 39 stig en Union í 9. sæti með 28 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Wolfsburg 2 - 3 Augsburg
1-0 Yannick Gerhardt ('41 )
1-1 Rodrigo Ribeiro ('59 )
2-1 Kento Shiogai ('70 )
2-2 Michael Gregoritsch ('87 , víti)
2-3 Elvis Rexhbecaj ('90 )

Union Berlin 1 - 0 Bayer
1-0 Rani Khedira ('28 )

Bayern 3 - 2 Eintracht Frankfurt
1-0 Aleksandar Pavlovic ('16 )
2-0 Harry Kane ('20 )
3-0 Harry Kane ('68 )
3-1 Jonathan Burkardt ('77 , víti)
3-2 Arnaud Kalimuendo ('86 )

Koln 2 - 2 Hoffenheim
1-0 Ragnar Ache ('15 )
1-1 Ozan Kabak ('45 )
1-2 Andrej Kramaric ('60 )
2-2 Said El Mala ('63 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 25 16 7 2 53 26 +27 55
3 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 25 9 8 8 48 49 -1 35
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
10 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
11 Union Berlin 25 7 7 11 30 42 -12 28
12 Gladbach 26 7 7 12 30 43 -13 28
13 Werder 25 6 7 12 29 45 -16 25
14 Köln 25 6 6 13 34 43 -9 24
15 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
16 St. Pauli 26 6 6 14 23 42 -19 24
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner
banner