Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Hákon bekkjaður í sigri - Strasbourg endaði sigurgöngu Lyon
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það var nóg um að vera í franska boltanum í dag þar sem Lille komst aftur á sigurbraut eftir sex deildarleiki án sigurs.

Hákon Arnar Haraldsson var bekkjaður en fékk að spila síðustu 20 mínúturnar í sigri gegn Angers. Olivier Giroud skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.

Lille er í fimmta sæti með 37 stig eftir sigurinn, þremur stigum frá meistaradeildarsæti.

Strasbourg tók þá á móti Lyon og tókst að binda enda á ótrúlegu sigurhrinu andstæðinga sinna. Lyon hafði unnið 13 leiki í röð í öllum keppnum en réðu ekki við Strasbourg í dag.

Heimamenn í Strasbourg voru talsvert sterkara liðið og unnu 3-1 eftir mörk frá Martial Godo, Diego Moreira og Joaquin Panichelli.

Strasbourg er í sjöunda sæti með 34 stig, sex stigum frá meistaradeildarsæti þegar ellefu umferðir eru eftir.

Í öðrum leikjum dagsins gerðu Nice og Lorient 3-3 jafntefli og þá skoraði Mahdi Camara tvennu í þægilegum sigri Rennes gegn Auxerre. Nantes hafði að lokum betur gegn Le Havre.

Angers 0 - 1 Lille
0-1 Olivier Giroud ('45+2, víti)

Strasbourg 3 - 1 Lyon
1-0 Martial Godo ('37)
2-0 Diego Moreira ('52)
2-1 Corentin Tolisso ('59)
3-1 Joaquin Panichelli ('83, víti)

Nice 3 - 3 Lorient

Auxerre 0 - 3 Rennes

Nantes 2 - 0 Le Havre


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner