Chelsea hefur verið sektað um tíu milljónir punda og fengið tveggja ára skilorðsbundið félagaskiptabann vegna ótilkynntra greiðslna til umboðsmanna og þriðja aðila á árunum 2011 til 2018.
Ef félagið brýtur aftur af sér á næstu tveimur árum fer það því um leið í félagaskiptabann.
Ef félagið brýtur aftur af sér á næstu tveimur árum fer það því um leið í félagaskiptabann.
Málið nær til ótilkynntra greiðslna sem nema upp á 47 milljónum punda til óskráðra umboðsmanna og þriðju aðila í tengslum við félagaskipti. Brotin áttu sér öll stað á meðan Roman Abramovich var eigandi félagsins.
Í skýrslu um málið eru nefnd nokkur skipti sem tengjast greiðslunum, þar á meðal hjá Eden Hazard, Samuel Eto'o, Willian, Ramires, David Luiz, André Schürrle og Nemanja Matic.
Chelsea fékk einnig níu mánaða bann við skráningu leikmanna í akademíu sína sem tekur gildi strax, ásamt 750 þúsund punda sekt vegna skráninga leikmanna í akademíu á árunum 2019 til 2022.
Athugasemdir

