City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 14:21
Elvar Geir Magnússon
„Bíðum og sjáum“ - Óvíst hvort Ödegaard og Timber verða klárir fyrir úrslitaleikinn
Ödegaard verður ekki með í seinni leiknum gegn Leverkusen.
Ödegaard verður ekki með í seinni leiknum gegn Leverkusen.
Mynd: EPA
Martin Ödegaard og Jurrien Timber verða ekki með Arsenal í seinni leiknum gegn Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Liðin mætast í London á morgun en fyrri leikurinn í Þýskalandi endaði með 1-1 jafntefli.

„Bíðum og sjáum,“ sagði Arteta þegar hann var spurður út í hvort þeir yrðu klárir á sunnudag; þegar Arsenal leikur gegn Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins.

Hnémeiðsli hafa haldið fyrirliðanum Ödegaard frá vellinum síðustu vikur en hann byrjaði síðast í janúar. Timber meiddist á ökkla í 2-0 sigrinum gegn Everton um helgina.

Leandro Trossard, sem hefur misst af síðustu tveimur leikjum, æfði hinsvegar í dag og er klár í slaginn fyrir morgundaginn. Ben White er einnig klár.
Athugasemdir
banner
banner