Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 19:08
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Milan fjarlægist titilinn með óvæntu tapi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Milan 0 - 1 Parma
0-1 Mariano Troilo ('80)

AC Milan tók á móti Parma í efstu deild ítalska boltans í dag og þurfti sigur til að halda í við topplið Inter eftir sjöunda sigur nágrannaliðsins í röð.

Rafael Leao og Christian Pulisic byrjuðu saman í framlínunni en þeim tókst ekki að skora mark. Milan var sterkara liðið stærsta hluta leiksins en boltinn rataði ekki í netið. Ruben Loftus-Cheek var í byrjunarliði Milan en meiddist illa eftir ljótan árekstur við markvörð Parma snemma leiks og var borinn af velli.

Parma fékk lítið af færum en eitt slíkt kom eftir hornspyrnu á 80. mínútu sem Mariano Troilo skallaði í netið. Dómarinn dæmdi upprunalega sóknarbrot, en kollegar hans í VAR-herberginu báðu hann um að fara í skjáinn.

Eftir nokkrar mínútur í skjánum tók Marco Piccinini ákvörðun um að snúa ákvörðun sinni við. Ekkert sóknarbrot og því dæmt mark.

Milan tókst ekki að skapa mikla hættu þrátt fyrir sóknarþunga sinn á lokakaflanum, svo lokatölur urðu 0-1 fyrir Parma.

Þetta er þriðji sigur Parma í röð sem fer langa leið með að tryggja liðinu sæti í efstu deild fyrir komandi tímabil.

Milan situr áfram í öðru sæti, tíu stigum á eftir Inter þegar tólf umferðir eru eftir af tímabilinu.

Þetta hefur verið frábær dagur fyrir Inter í titilbaráttunni þar sem bæði Milan og Napoli, sem sitja í öðru og þriðja sæti, töpuðu sínum leikjum eftir að Inter lagði Lecce að velli í gær.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner