Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Barcelona getur endurheimt toppsætið
Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona geta endurheimt toppsæti La Liga með sigri á heimavelli gegn fallbaráttuliði Levante í dag.

Börsungar misstu toppsætið til Real Madrid eftir óvænt tap gegn Girona í síðustu umferð, en í dag fá þeir tækifæri til að hrifsa það aftur til sín eftir að Madrídingar töpuðu gegn Osasuna.

Það eru þrír aðrir leikir sem fara fram í dag. Sevilla heimsækir Getafe í neðri hlutanum áður en Celta Vigo og Mallorca eigast við, en hvorugt lið hefur átt góðu gengi að fagna á undanförnum vikum.

Að lokum á Villarreal heimaleik við nágranna sína í Valencia og má búast við mikilli baráttu. Villarreal er í góðri stöðu í þriðja sæti deildarinnar á meðan Valencia þarf á öðrum sigri að halda í fallbaráttunni eftir jákvæð úrslit síðustu vikna.

Leikir dagsins
13:00 Getafe - Sevilla
15:15 Barcelona - Levante
17:30 Celta - Mallorca
20:00 Villarreal - Valencia
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Villarreal 28 17 4 7 51 33 +18 55
4 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 27 10 7 10 34 40 -6 37
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 28 10 5 13 30 38 -8 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Girona 28 8 10 10 29 43 -14 34
13 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
14 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
15 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
16 Alaves 28 7 7 14 26 38 -12 28
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 27 3 9 15 17 44 -27 18
Athugasemdir
banner
banner