Ólafur Brynjólfsson þjálfari Vals var skiljanlega gríðarlega svekktur eftir naumt tap á Selfossi í dag. Valur komst í 0-2 en Selfyssingar unnu leikinn 3-2 og eru þar af leiðandi komnar í úrslitaleik Borgunarbikarsins þar sem þær mæta Stjörnunni.
„Þetta eru mestu vonbrigði sem ég hef upplifað á ævi minni. Að vera með gott Selfosslið á móti sér, við erum með dómarann á móti okkur og við erum með frábæra áhorfendur sem mættu hingað á Selfoss."
„Ég er stoltur af mínu liði að geta nánast verið með helming á móti sér, það er nóg að vera með 11 á móti sér. Þegar þú ert kominn með dómarann á móti þér sem gefur þeim mörk, aukaspyrnur útum allan völl. Svona er lífið. Við verðum bara að taka þetta á okkur, þetta datt með Selfossi með hjálp dómarans."
Ólafur gerir ráð fyrir því að tapið í dag styrki þær og gefi þeim byr undir báða vængi í baráttunni sem þær eru í í deildinni.
„Þetta gefur okkur byr undir báða vængi. Það er engin spurning. Ef að þetta drepur mann ekki þá heldur maður áfram og byggir ofaná það."
Viðtalið við Ólaf má sjá hér að ofan.






















