Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 11:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Bournemouth og Sunderland: Sá mikilvægasti snýr aftur
Granit Xhaka.
Granit Xhaka.
Mynd: EPA
Hádegisleikurinn í ensku úrvalsdeildinni er viðureign Bournemouth og Sunderland.

Það eru stór tíðindi af Sunderland því Granit Xhaka er mættur í byrjunarliðið í fyrsta sinn í sex vikur. Hann er búinn að jafna sig af ökklameiðslum og getur byrjað.

Þetta eru stór tíðindi því Xhaka er langmikilvægasti leikmaður Sunderland og hafði verið einn besti leikmaður deildarinnar áður en hann meiddist.

Hjá Bournemouth koma Marcus Tavernier og David Brooks inn í byrjunarliðið á meðan Amine Adli og Evanilson fara á bekkinn.

Byrjunarlið Bournemouth: Petrovic, Jimenez, Hill, Senesi, Truffert, Adams, Scott, Rayan, Brooks, Tavernier, Kroupi Jr.
(Varamenn: Mandas, Evanilson, Christie, Smith, Diakite, Adli, Enes Unal, Toth, Milosavljevic)

Byrjunarlið Sunderland: Roefs, Geertruida, Ballard, Alderete, Hume, Xhaka, Sadiki, Diarra, Talbi, Le Fee, Mayenda.
(Varamenn: Ellborg, O'Nien, Rigg, H. Jones, Jen. Jones, Aleksic, Angulo, Traore, Isidor)
Athugasemdir
banner
banner