Það var nóg um að vera hjá íslensku atvinnukonunum sem leika erlendis í dag.
Hildur Antonsdóttir lék allan leikinn í liði Madrid sem gerði jafntefli við Espanyol í efstu deild á Spáni á meðan Birta Georgsdóttir var í byrjunarliði Genoa sem náði jafntefli við Juventus.
Madrid siglir lygnan sjó um miðja Liga F á meðan Genoa er í botnsæti Serie A með 9 stig eftir 17 umferðir, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir varði þá mark Inter í 2-2 jafntefli gegn Napoli, með Telmu Ívarsdóttur á varamannabekknum. Inter komst í tveggja marka forystu í seinni hálfleik en gestunum frá Napólí tókst að jafna metin á lokakaflanum. Inter er í öðru sæti eftir jafnteflið, þremur stigum á eftir toppliði Roma sem á leik til góða.
Í efstu deild í Noregi mættust Sædís Rún Heiðarsdóttir og Daníela Dögg Guðnadóttir í fyrstu umferð á nýju tímabili. Þar höfðu Daníela og stöllur í liði Álasunds betur á útivelli gegn Vålerenga. Arna Eiríksdóttir kom inn af bekknum í tapliði Vålerenga.
Í Danmörku fékk hin 16 ára gamla Rebekka Sif Brynjarsdóttir að spila síðasta hálftímann í 4-1 sigri Nordsjælland á meðan Hafrún Rakel Halldórsdóttir var í byrjunarliði Bröndby í jafntefli gegn HB Köge.
Nordsjælland er þremur stigum frá Bröndby sem situr í síðasta evrópusætinu sem stendur. Bröndby er enn sex stigum á eftir toppliði HB Köge eftir jafnteflið.
Emelía Óskarsdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir léku þá allan leikinn í naumu tapi hjá FCK sem er í harðri baráttu um sæti í efstu deild.
Í næstefstu deild tapaði Esbjerg heimaleik gegn B.93 í fallbaráttunni.
Að lokum tapaði Íslendingalið Anderlecht heimaleik gegn OH Leuven í efstu deild í Belgíu. Anderlecht siglir lygnan sjó í öðru sæti deildarinnar, þrettán stigum á eftir toppliði Leuven.
Madrid 1 - 1 Espanyol
Genoa 0 - 0 Juventus
Inter 2 - 2 Napoli
Valerenga 0 - 2 Aalesund
Nordsjælland 4 - 1 Kolding
Bröndby 0 - 0 Köge
FC Kobenhavn 0 - 1 ASA Aarhus
Esbjerg 0 - 2 B.93
Anderlecht 0 - 1 Leuven
Athugasemdir



