Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   lau 21. mars 2026 17:45
Hafþór Örn Laursen
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, að skoða gögnin.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, að skoða gögnin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR-ingar töpuðu í úrslitum Lengjubikarsins á vægast sagt svekkjandi máta, 4-3 í vítaspyrnukeppni.

„Mér fannst við vera frábærir sóknarlega og varnarlega þangað til við missum Arnar Frey af velli og leikurinn breytist eftir það. Mér fannst við vera flýta okkur of mikið með boltann og það datt aðeins takturinn úr liðinu.''

Lestu um leikinn: Fylkir 8 -  7 KR

KR-ingar fengu á sig mark á 95. mínútu en voru fljótir að jafna á 97. mínútu með marki frá Sigurði Breka.

„Við sýndum mikinn karakter eftir að hafa fengið á okkur þetta mark í lokin og það er mjög dýrmætt fyrir liðið að sjá það að það er ekkert búið fyrr en það er búið og þú játar þig ekki sigraðan fyrr en það er flautað af.''

Í seinustu ótímabæru spá Bestu Deildarinnar er KR-ingum spáð 6. sæti. Óskar var spurður út í það.

„Ég hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti. Við vorum í 10. sæti í fyrra og áttum frábæra kafla en gerðum okkur seka um að detta niður inn á milli og okkur vantaði stöðugleika. Verkefnið okkar þetta sumar er að ná í þennan stöðugleika, hvort sem það er fótboltalegur eða andlegur stöðugleiki. Það er erfitt að setja stefnuna á eitthvað sæti vegna þess að þegar þú setur saman sæti þá ertu farinn að tala um margar breytur sem þú hefur ekki stjórn á. Það er hollast fyrir okur að einbeita okkur að okkur sjálfum. Við höfum sett okkur innri markmið og það er alveg ljóst að KR fer í hvern einasta leik til að vinna hann og þannig er lífið í Vesturbænum.''
Slapp
banner
banner
banner