Það eru aðeins tveir leikir eftir af fótboltatímabilinu hjá bestu liðum Þýskalands og fer annar þeirra fram á morgun.
Þýskalandsmeistarar FC Bayern spila þá bikarúrslitaleikinn við Stuttgart á Ólympíuleikvanginum í Berlín.
Þetta er fyrsti bikarúrslitaleikur Bayern síðan 2020 þegar liðið varði bikarmeistaratitilinn sinn á milli ára.
Stuttgart er aftur á móti ríkjandi bikarmeistari eftir að hafa mætt Arminia Bielefeld í úrslitaleiknum í fyrra. Það var annað árið í röð sem lið úr neðri deildum þýska boltans komst alla leið í úrslitaleikinn.
Leikurinn fer fram á morgun klukkan 18:00 og er það næstsíðasti leikur þýska tímabilsins. Síðasti leikurinn er á dagskrá á mánudaginn.
Paderborn tekur þá á móti Wolfsburg í úrslitaleik um síðasta lausa sætið í efstu deild þýska boltans fyrir næstu leiktíð. Staðan er 0-0 eftir fyrri viðureign liðanna í Wolfsburg í leik þar sem heimamenn sýndu mikla yfirburði en mistókst að skora.
Laugardagur
18:00 Bayern - Stuttgart
Mánudagur
18:30 Paderborn - Wolfsburg (0-0)



