Það má segja að Olga Sevcova, leikmaður ÍBV, hafi verið heppin að sleppa við rautt spjald í leik gegn FH í Bestu deildinni núna í vikunni.
Olga gaf Jónínu Linnet, leikmanni FH, olnbogaskot en hún fékk ekki einu sinni spjald fyrir atvikið.
Olga gaf Jónínu Linnet, leikmanni FH, olnbogaskot en hún fékk ekki einu sinni spjald fyrir atvikið.
08.06.2022 11:30
Í tveggja leikja bann vegna olnbogaskots í Breiðholti - Dæmt eftir myndbandsupptöku
Rætt var um málið í Uppbótartímanum en hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband af atvikinu.
„Það væri ekki dæmt neitt á þetta í leiknum en það sást vel á upptökunni," sagði Arnar Páll Garðarsson.
„Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta er með agamál eftir leiki, hvort það þurfi að senda eitthvað inn en ef allt er eðlilegt er Olga Sevcova á leið í þriggja leikja bann."
Það eru fordæmi fyrir því að leikmenn á Íslandi fari í bann út frá myndbandsupptökum eftir leiki. Það er spurning hvort það verði eitthvað aðhafst í þessu máli.

