Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 22. maí 2026 22:22
Viktor Ingi Valgarðsson
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld fór FH á Víkingsvöll og mæti þar toppliði Víkinga. Leiknum lauk með 5-0 tapi FH. Byrjun móts heldur betur ekki verið sannfærandi og annan leikinn í röð þar sem liðið fær á sig rautt spjald í kringum hálfleik.

Jóhannes Karl var til viðtals eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Víkingur R. 5 -  0 FH

„Ömurlegt að tapa fótboltaleikjum og að tapa stórt er aldrei skemmtilegt."

„Fyrri hálfleikurinn bara allt í lagi frammistaða hjá okkur. Við sköpuðum okkur 3-4 góðar stöður. Svo þetta var ásættanleg frammistaða þannig lagað."

Annan leikinn í röð fékk leikmaður FH beint rautt spjald, nú var það Sverrir Páll Hjaltested á 47.mínútu þegar liðið var 2-0 undir.

„Þetta rauða spjald þá gjörbreytist leikurinn náttúrulega. Þeir gegnu bara á lagið í seinni hálfleik. "Ég treysti dómaranum bara fyrir því, Sverrir braut náttúrulega á honum, mér fannst þetta ekkert ofsafengið eða svoleiðis. Dómarinn hlýtur að hafa verið með þetta rétt þannig ég treysti því."

Báðir þjálfarar nýttu allar sínar skiptingar en þær FH meginn náðu ekki að sitja neinn stimpil á leikinn. „Já það er alveg gæða munur, það vita allir að Víkingar eru með besta mannskapinn, hörku gott lið og gríðarlega mikla reynslu. Reyndum að einhverju leiti að loka á þá og fara í fimm manna vörn."

Næsti leikur FH er á móti ÍA og alveg ljóst að FH liðið þarf að fara bæta í stigasöfnunina. „Það voru nokkrir jákvæðir hlutir í fyrri hálfleik. Sérstaklega í uppspilinu, Robbi og Baldur voru að finna góð svæði og komumst í ágætar stöður með hraða á köntunum. Þurfum að halda áfram að gera það, erum að fá á okkur allt of mikið af mörkum, það er alveg nokkuð ljóst. En það sem skiptir mestu máli í svona mótlæti er að menn standi saman og séu sterkir."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner