Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Thiago Silva verður ekki áfram í Porto
Mynd: EPA
Brasilíski varnarjaxlinn Thiago Silva, sem verður 42 ára í september, fær ekki nýjan samning hjá Portúgalsmeisturum Porto.

Thiago Silva gekk til liðs við félagið í janúar í tilraun til að vinna sér inn sæti í brasilíska landsliðshópnum fyrir heimsmeistaramótið.

Silva var ekki valinn í landsliðið og nú þarf hann að taka ákvörðun um framtíðina.

Ljóst er að miðvörðurinn hefur enn upp á margt að bjóða þrátt fyrir gríðarlega háan aldur fyrir útispilandi leikmann, enda var hann mikilvægur hlekkur í liði Fluminense í Brasilíu áður en hann skipti til Porto.

Silva sannaði að hann getur enn spilað 90 mínútur á háu gæðastigi þegar Porto mætti Stuttgart og Nottingham Forest í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.

Silva spilaði allan tímann er Porto sló Stuttgart úr leik og tapaði svo naumlega fyrir Forest.

   03.05.2026 07:30
Porto deildarmeistari í 31. sinn

Slapp
banner