Cristiano Ronaldo var á sínum stað í byrjunarliði Al-Nassr þegar liðið tók á móti Damac í gríðarlega mikilvægum leik í lokaumferð sádi-arabíska deildartímabilsins.
Al-Nassr þurfti sigur til að tryggja sér langþráðan deildarmeistaratitil, þann fyrsta frá því að Ronaldo gekk til liðs við félagið fyrir þremur og hálfu ári síðan.
Al-Nassr var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik en náði aðeins að skora eitt mark, þegar Sadio Mané kom boltanum í netið eftir undirbúning frá Joao Félix.
Síðari hálfleikurinn var bragðdaufari heldur en sá fyrri en leikmenn nýttu hvert einasta færi sem bauðst.
Kingsley Coman tvöfaldaði forystu heimamanna áður en Morlaye Sylla minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu. Staðan var 2-1 og þá var röðin komin að Ronaldo að innsigla sigurinn.
Ronaldo skoraði fyrst beint úr aukaspyrnu úr afar erfiðu færi úti á kanti. Hann gaf fastan bolta fyrir sem fór í gegnum vítateiginn og endaði í fjærhorninu.
Damac neyddist til að sækja og refsaði Ronaldo með fjórða og síðasta marki leiksins, svo lokatölur urðu 4-1. Ronaldo grét gleðitárum að leikslokum en Damac er fallið niður um deild.
Á sama tíma missti Al-Taawon af dauðafæri til að tryggja sér Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð. Al-Taawon þurfti sigur á útivelli gegn Al-Hazem til að stela fimmta sæti deildarinnar af Al-Ittihad sem er að eiga mikið vonbrigðatímabil.
Al-Ittihad tapaði óvænt 1-5 á heimavelli en Al-Taawon nýtti sér það ekki og tapaði sínum leik 2-0. Fabinho er fyrirliði Al-Ittihad en rennur út á samningi í sumar.
Markavélin ótrúlega Julian Quinones setti þrennu í stórsigri Al-Qadsiah gegn Al-Ittihad, þar af komu tvö mörk á sömu mínútu samkvæmt úrslitaþjónustu FlashScore, og endar tímabilið markahæstur. Hann er búinn að skora einu marki meira heldur en Ivan Toney. Quinones skoraði 33 mörk, Toney 32 og er Ronaldo í þriðja sæti með 28 mörk.
Aðrir leikir kvöldsins voru þýðingarlitlir nema 1-0 sigur Al-Riyadh gegn föllnu liði Al-Okhdood. Al-Riyadh kom sér þannig einu stigi uppfyrir fallsvæðið og bjargaði sæti sínu í deildinni.
Al-Nassr 4 - 1 Damac
1-0 Sadio Mane ('34)
2-0 Kingsley Coman ('52)
2-1 Morlaye Sylla ('58, víti)
3-1 Cristiano Ronaldo ('63)
4-1 Cristiano Ronaldo ('81)
Al-Fayha 0 - 1 Al-Hilal
0-1 Sultan Mandash ('4)
0-1 Ruben Neves, misnotað víti ('64)
Al-Ittihad 1 - 5 Al-Qadsiah
0-1 M. Al-Juwayr ('2)
0-2 Julian Quinones ('37, víti)
0-3 Julian Quinones ('37)
1-3 Youssef En-Nesyri ('42, víti)
1-4 Abu Al-Shamat ('55)
1-5 Julian Quinones ('64)
Al-Hazem 2 - 0 Al-Taawon
Al-Riyadh 1 - 0 Al-Okhdood
Neom 1 - 1 Al-Ettifaq
Al-Kholood 0 - 0 Al-Fateh
Posts from the soccer
community on Reddit




