Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 22. maí 2026 23:00
Viktor Ingi Valgarðsson
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víking R.
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víking R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld fékk toppliðið Víkingur heimsókn frá FH á Víkingsvöllinn. Leikurinn fór 5-0 fyrir Víking og mjög sannfærandi sigur um að ræða. Þetta var 8.umferð Bestu Deildarinnar og eru Víkingar nú með þriggja stiga forskot á toppnum.

Sölvi Geir Ottesen var til taks eftir leik og hafði þetta að segja: 


Lestu um leikinn: Víkingur R. 5 -  0 FH

„Mjög ánægður, sérstaklega ánægður með hugarfarið hjá leikmönnunum. Maður sá enga værukærð hjá þeim sem getur oft gerst þegar maður er að mæta liðum svona neðarlega."

„Rauð spjöld breyta auðvitað leikjum, en samt hugarfarið, að lenda einum manni fleiri þá helduru að þú getir slakað á og það getur oft komið í bakið á þér. Við gerðum það ekki, héldum áfram að hamra á þá og sína ákefðina sem við þurftum. Fengum urmul af færum í þessum leik og auðveldlega getað unnið þetta stærra."

Elías Már er orðinn markahæsti leikmaður deildarinnar með níu mörk eftir að hafa skorað tvö í dag. Fjórir markaskorar í dag og fjórir sem lögðu upp mörk.

„Frábært að framherjinn okkar er að skora mikið af mörkum og hann fær góða aðstoð frá leikmönnum í kringum sig. Þannig þetta er bara partur af góðri liðsheild að margir séu að koma að mörkunum og þannig viljum við hafa þetta."

Eins og var nefnt hér áður er liðið komið á toppinn þremur stigum á undan KR sem tapaði í dag. „Mætum með sama hugarfar, til að vinna þessa leiki. Ætlum að mæta í alla leiki alveg eins."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner