Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fös 22. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Ellefu lið berjast um sæti í lokaumferðinni
38 ára Iago Aspas er búinn að skora fimm og gefa þrjár stoðsendingar á deildartímabilinu.
38 ára Iago Aspas er búinn að skora fimm og gefa þrjár stoðsendingar á deildartímabilinu.
Mynd: EPA
Getafe tryggir sér Evrópusæti með sigri.
Getafe tryggir sér Evrópusæti með sigri.
Mynd: EPA
Lokaumferð spænska deildartímabilsins fer öll fram á sama tíma annað kvöld og er enn verið að berjast um nokkur mikilvæg sæti.

Fjögur lið eru að berjast um tvö síðustu Evrópusætin en af þeim er Celta Vigo í bestu stöðinni. Celta nægir jafntefli á heimavelli til að tryggja sér farmiða í deildarkeppni Evrópudeildarinnar.

Getafe er þremur stigum á eftir Celta og þarf sigur á heimavelli bæði til að tryggja sér sæti í Sambandsdeildina og til að eiga möguleika á Evrópudeildinni. Sigur hjá Getafe og tap hjá Celta yrði til þess að Getafe tæki sjötta sætið af þeim útaf betra gengi í innbyrðisviðureignum.

Rayo Vallecano og Valencia eiga möguleika á að stela Sambandsdeildarsætinu með sigrum í sínum viðureignum og hagstæðum úrslitum.

Að lokum eru sjö lið sem geta tæknilega séð ennþá fallið niður um deild þegar lokaumferðina ber að garði. Mallorca er neðst þessara liða, í næstneðsta sæti deildarinnar með 39 stig. Sevilla er efst liðanna, með 43 stig í 13. sæti.

Ljóst er að niðurstaða kvöldsins gæti reynst afar flókin ef þrjú lið eða fleiri enda með sama stigafjölda þar sem innbyrðisviðureignir telja framyfir markatölu.

Leikir kvöldsins
19:00 Girona - Elche
19:00 Valencia - Barcelona
19:00 Real Betis - Levante
19:00 Celta Vigo - Sevilla
19:00 Mallorca - Real Oviedo
19:00 Getafe - Osasuna
19:00 Espanyol - Real Sociedad
19:00 Alaves - Rayo Vallecano
19:00 Real Madrid - Athletic Bilbao
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner