Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fös 22. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Átta lið í baráttu um mikilvæg sæti
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins fer fram á sunnudaginn og þó að baráttan um Englandsmeistaratitilinn sé ráðin þá eru átta lið í baráttu um mikilvæg sæti á stöðutöflunni.

Í fallbaráttunni eru það Lundúnaliðin West Ham United og Tottenham Hotspur sem geta fallið. West Ham þarf sigur á heimavelli gegn Leeds og að treysta á sama tíma að Tottenham tapi sínum heimaleik gegn Everton. Það er eina raunhæfa leiðin fyrir Hamrana til að forðast fall.

Þá eru sex lið enn að berjast um í Evrópubaráttunni. Liverpool nægir jafntefli heima gegn Brentford til að tryggja Meistaradeildarsæti en það gæti reynst afar erfið viðureign í ljósi þess að lærlingar Keith Andrews þurfa sigur í Evrópubaráttunni.

Þó að Liverpool myndi tapa þeim leik þá er enn margt sem þarf að gerast til að lærlingar Arne Slot missi af Meistaradeildinni. Bournemouth þyrfti að vinna fimm marka stórsigur á Nottingham Forest til að jafna Liverpool á markatölu.

Bournemouth er búið að tryggja sér Evrópudeildarsæti en næsta lið fyrir neðan er Brighton sem þarf sigur gegn Manchester United til að tryggja sitt sæti í keppninni. Chelsea er andandi ofan í hálsmálið á lærlingum Fabian Hürzeler, aðeins einu stigi eftirá.

Chelsea spilar gríðarlega spennandi leik við Sunderland þar sem bæði lið eru í harðri baráttu um Evrópusæti og þurfa á sigri að halda.

Leikir dagsins
15:00 Brighton - Man Utd
15:00 Burnley - Wolves
15:00 West Ham - Leeds
15:00 Fulham - Newcastle
15:00 Nott. Forest - Bournemouth
15:00 Liverpool - Brentford
15:00 Man City - Aston Villa
15:00 Tottenham - Everton
15:00 Sunderland - Chelsea
15:00 Crystal Palace - Arsenal
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner