Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Tilbúinn í málaferli ef Hull tapar úrslitaleiknum
Stuðningsmenn Hull City eru vongóðir eftir sigur gegn Millwall í undanúrslitum umspilsins.
Stuðningsmenn Hull City eru vongóðir eftir sigur gegn Millwall í undanúrslitum umspilsins.
Mynd: EPA
Það eru níu ár liðin síðan Hull lék síðast í úrvalsdeildinni.
Það eru níu ár liðin síðan Hull lék síðast í úrvalsdeildinni.
Mynd: EPA
Hull City er búið að tryggja sér þátttökurétt í úrslitaleik umspils Championship deildarinnar um síðasta lausa sætið í ensku úrvalsdeildinni en mótherji liðsins hefur breyst.

Southampton lagði Middlesbrough að velli eftir framlengd undanúrslit og því héldu stjórnendur, þjálfarar og leikmenn Hull að þeir myndu mæta Southampton í úrslitaleiknum.

Middlesbrough kærði leikinn og vann málið til að taka sæti Southampton í úrslitaleiknum. Leikurinn fór fram 12. maí og það leið heil vika áður en úrskurður féll.

Hull eru afar óhressir með þessa þróun mála. Liðið var að búa sig undir úrslitaleik við Southampton en þurfti að breyta sínum undirbúningi viku síðar. Hull fær því einungis þrjá sólarhringa til að undirbúa sig fyrir Middlesbrough.

Acun Ilicali, eigandi og forseti Hull City, segist vera tilbúinn í málaferli ef liðið tapar úrslitaleiknum á laugardaginn.

„Ég vil ekki benda neinum fingrum þar til heildarmyndin í kringum þetta mál skýrist betur, en þetta hefur alltof mikil áhrif á okkar undirbúning fyrir úrslitaleikinn. Ég kem fram fyrir hönd stórs félagsliðs og stórrar fjölskyldu og ég mun ekki láta fjölskyldu okkar verða fyrir óréttlæti. Við munum leita réttar okkar ef við töpum úrslitaleiknum," sagði Ilicali meðal annars við Sky Sports.

„Tvö lið komust í úrslitaleikinn og annað þeirra var dæmt úr keppni. Skoðun lögmanna okkar er að við ættum að fara beint upp í úrvalsdeildina, en þeir eru að skoða stöðuna gaumgæfilega. Við getum ekki gefið neitt endanlegt svar eins og staðan er núna, þetta eru flóknar og erfiðar aðstæður.

„Við höfðum verið að undirbúa úrslitaleik við Southampton í heila viku. Allur undirbúningur var gerður í kringum Southampton og núna þegar eru bara nokkrir dagar í úrslitaleikinn breyta þeir um andstæðing."


   21.05.2026 00:26
Áfrýjun Southampton bar ekki árangur

Slapp