Heimild: RÚV
Fyrirtæki Sir Jim Ratcliffe, hluteiganda í Manchester United, keypti rútu fyrir Einherja á Vopnarfirði. RÚV greinir frá.
Um er að ræða Ford rútu sem rúmar 16 farþega. Rögnvaldur Þorgrímsson, formaður Einherja, segir í samtali við RÚV rútuna vera komna til landsins og í tollafgreiðslu.
Um er að ræða Ford rútu sem rúmar 16 farþega. Rögnvaldur Þorgrímsson, formaður Einherja, segir í samtali við RÚV rútuna vera komna til landsins og í tollafgreiðslu.
Ratcliffe hefur verið duglegur að fjárfesta í jörðum á norðausturhorni Íslands síðustu ár.
Rútan mun ferja fótbolta- og blaklið Einherja á milli staða en þá mun hún einnig koma til með að nýtast skólabörnum og eldri borgurum á Vopnarfirði.
Fyrirtækið sem fjárfesti í rútunni heitir Six Rivers og verður rútan merkt fyrirækinu og í Einherjalitunum.



