Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 21:37
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Sigurður Hrannar sigraði Garðabæ
Mynd: Haukar
KFG 0 - 4 Haukar
0-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('21, víti)
0-2 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('35)
0-3 Jón Arnar Barðdal ('77)
0-4 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('82, víti)

Haukar heimsóttu KFG í eina leik kvöldsins í 2. deild karla og skópu þægilegan sigur þökk sé þrennu frá Sigurði Hrannari Þorsteinssyni.

Sigurður Hrannar skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og fullkomnaði þrennuna í síðari hálfleik. Tvö markanna komu af vítapunktinum.

Jón Arnar Barðdal setti eitt mark og urðu lokatölur 0-4 fyrir Hauka sem eru búnir að vinna þrjá deildarleiki í röð.

Haukar eru með 9 stig eftir fjórar fyrstu umferðir deildartímabilsins en KFG situr eftir með 3 stig.
Slapp
banner
banner