Ísak Snær Þorvaldsson, framherji Lyngby, hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn fyrir æfingaleik gegn Japan þann 31. maí.
Hann kemur inn í hópinn fyrir Viktor Bjarka Daðason sem meiddist í 3-1 sigri FCK gegn Bröndby í leik um sæti í Sambandsdeildinni á næstu leiktið.
Hann kemur inn í hópinn fyrir Viktor Bjarka Daðason sem meiddist í 3-1 sigri FCK gegn Bröndby í leik um sæti í Sambandsdeildinni á næstu leiktið.
Ísak kom á láni til Lyngby frá Rosenborg en félagið festi kaup á honum í síðasta mánuði. Hann hefur komið við sögu í 24 leikjum í næst efstu deild í Danmörku á þessu tímabili og skorað sjö mörk og lagt upp tvö. Lyngby hefur tryggt sér sæti í efstu deild.
Ísak hefur spilað sex landsleiki og skorað eitt mark.



