Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, tjáði sig um valið á HM hópnum á fréttamannafundi í dag en það er umdeilt.
„Það er alveg skýrt að við erum að reyna að velja og byggja upp besta mögulega liðið. Þetta snýst ekki um að velja 26 hæfileikaríkustu leikmennina. Það eru liðsheildir sem vinna meistaratitla," segir Tuchel.
„Það er mikið jafnvægi í hópnum hjá okkur og ég get fullyrt það við alla stuðningsmenn að við erum með 26 leikmenn sem eru 100% með hugann við þetta verkefni og munu leggja sig alla fram."

Kom á óvart
Meðal þeirra leikmanna sem ekki er pláss fyrir er varnarmaðurinn Harry Maguire sem sendi frá sér yfirlýsingu í gær.
„Ég var viss um að ég hefði getað spilað stórt hlutverk í sumar fyrir þjóð mína eftir þetta tímabil sem ég hef átt. Ég er bæði miður mín og í áfalli yfir ákvörðuninni," sagði Maguire meðal annars í yfirlýsingunni.
Tuchel var ekki hrifinn af því að leikmaðurinn hafi sent þetta frá sér og segir að yfirlýsingin hafi komið á óvart.
„Þetta kom mér á óvart en ég ber mikla virðingu fyrir honum og skil vonbrigði hans. Við áttum einkasamtal og hann hafði tækifæri til að segja frá tilfinningum sínum. Við stöndum algjörlega með okkar miðvörðum sem spiluðu vel fyrir okkur í september til nóvember," segir Tuchel.
Hringdi í alla leikmenn
Trent Alexander-Arnold, Phil Foden og Cole Palmer eru meðal annarra leikmanna sem fengu ekki pláss í hópnum.
„Ég hringdi í alla leikmenn sem hafa verið með okkur. Ég þurfti að taka erfiðar ákvarðanir, sársaukafullar. Erfiðar fyrir leikmennina, erfitt að útskýra þetta fyrir þeim. En ég er virkilega ánægður með hópinn sem við völdum og fer með okkur á mótið."
Króatía, Gana og Panama eru í riðli með Englandi á HM.
The boss on the tough decisions that had to be made ahead of announcing his #ThreeLions squad ???? pic.twitter.com/Q0rvMKL9eb
— England (@England) May 22, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!