Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, segist ekki skilja gagnrýni sem liðið fékk eftir að hafa fagnað leikjameti Glódísar Perlu Viggósdóttur eftir tapleik gegn Englandi í síðasta landsleikjaglugga.
Glódís lék sinn 146. leik gegn Englandi í apríl og þar með sló hún leikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Leiknum lauk með naumu 0-1 tapi íslenska liðsins. Eftir leik var áfanga Glódísar fagnað með köku, konfettíi og blöðrum.

Kristján Óli Sigurðsson og Mikael Nikulásson voru meðal þeirra sem gagnrýndu fögnuðinn og gerðu þeir það í Þungavigtinni. Í frétt 433.is var m.a. haft eftir þeim:
„Kannski ekki það fín úrslit að þú sprengir konfetti inn í klefa eftir leik“ og „Þær voru bara glaðar inni í klefa og klappa fyrir Glódísi. Þær voru að tapa leiknum.“
Eftir að landsliðshópurinn var tilkynntur í dag var Þorsteinn Halldórsson spurður út í hvort gagnrýnin hefði verið réttmæt.
„Nei, ég skil hana ekki. Leikmenn voru bara að samgleðjast með henni, þetta var ekkert annað. Þetta var ekki partí, þetta tók þrjár mínútur þarna inni og búið,“ sagði Steini.
Viðtalið og fögnuðinn má sjá hér fyrir neðan. Þorsteinn er spurður út í fögnuðinn í lok viðtals.