Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
banner
   fim 21. maí 2026 19:09
Elvar Geir Magnússon
Helgi Mikael dómari varð fyrir tæklingu og þurfti aðhlynningu
Helgi Mikael Jónasson dómari.
Helgi Mikael Jónasson dómari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú stendur yfir leikur ÍA og ÍBV í Bestu deildinni en dómari leiksins er Helgi Mikael Jónasson.

Eftir rúmlega hálftíma leik var þó útlit fyrir að Helgi Mikael þyrfti að fara meiddur af velli.

„Helgi Mikael dómari óvart tæklaður á miðjum vellinum og þarfnast aðhlynningar," skrifaði Viktor Ingi Valgarðsson, textalýsandi Fótbolta.net.

Alex Freyr Hilmarsson fyrirliði ÍBV og Helgi Mikael lentu á hvor öðrum og þurfti Helgi að fá aðhlynningu frá sjúkraþjálfara ÍA í kjölfarið.

Hann gat haldið leik áfram en ef hann hefði farið meiddur af velli þá hefði Róbert Þór Guðmundsson fjórði dómari tekið við flautunni og dæmt sinn fyrsta leik í Bestu deild karla.

Staðan er markalaus á Akranesi þegar þessi frétt er skrifuð en með því að smella hérna er hægt að fara í textalýsingu frá leiknum.
Slapp
banner
banner