Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fim 21. maí 2026 20:43
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Paderborn hélt út í fyrri úrslitaleiknum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Wolfsburg 0 - 0 Paderborn
Rautt spjald: Jonah Sticker, Paderborn ('94)

Wolfsburg og Paderborn áttust við í fyrri úrslitaleik liðanna um sæti í efstu deild þýska boltans fyrir næstu leiktíð.

Wolfsburg endaði í þriðja neðsta sæti Bundesliga þökk sé sigri í lokaumferðinni og spilar því umspilsleiki við Paderborn sem endaði í þriðja sæti í næstefstu deild, 2. Bundesliga.

Wolfsburg var talsvert sterkari aðilinn í dag og fékk mikið af góðum færum, en gestirnir frá Paderborn vörðust af miklu hugrekki og fengu eitt gott færi til að skora á lokakaflanum en boltinn náði ekki að fara yfir marklínuna.

Christian Eriksen var í byrjunarliði Wolfsburg og var meðal þeirra sem komust nálægt því að skora, en enginn fann leið framhjá Dennis Seimen markverði, svo lokatölur urðu 0-0.

Wolfsburg var á heimavelli í kvöld og eigast liðin við í seinni leiknum í Paderborn næsta mánudagskvöld.

   21.05.2026 05:55
Þýskaland í dag - Fyrri úrslitaleikurinn er í kvöld

Slapp
banner
banner