Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fös 22. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Mikilvægu leikirnir á sunnudagskvöldið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lokaumferð ítalska deildartímabilsins fer fram um helgina og hefst fjörið í kvöld þegar Fiorentina og Atalanta eigast við í þýðingarlausum slag þar sem bæði lið sigla lygnan sjó.

Albert Guðmundsson og félagar voru lengi vel í fallbaráttu en eru núna sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 41 stig eftir 37 umferðir, á meðan Atalanta er búið að tryggja sér sæti í Sambandsdeildinni.

Á morgun eiga Bologna og Lazio heimaleiki gegn Inter og Pisa áður en Parma og Napoli spila heimaleiki á sunnudaginn.

Seinnipart sunnudags fara mikilvægu leikirnir fram hjá liðunum sem eru ennþá í stöðubaráttu í deildinni.

Það eru sex lið að berjast um sæti á lokametrunum þar sem Como og Juventus eru að reyna að koma sér í Meistaradeildina á kostnað Milan og Roma.

Þá eru Lecce og Cremonese í harðri fallbaráttu en þetta lítur illa út fyrir Cremonese sem spilar heimaleik við sterkt lið Como á meðan Lecce tekur á móti Mikael Agli Ellertssyni og félögum frá Genoa sem eru löngu búnir að bjarga sér frá falli.

Föstudagur
18:45 Fiorentina - Atalanta

Laugardagur
16:00 Bologna - Inter
18:45 Lazio - Pisa

Sunnudagur
13:00 Parma - Sassuolo
16:00 Napoli - Udinese
18:45 Cremonese - Como
18:45 Verona - Roma
18:45 Lecce - Genoa
18:45 Milan - Cagliari
18:45 Torino - Juventus
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner