Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 22. maí 2026 20:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Líður miklu betur með svona tapleiki heldur en þegar menn leggja sig ekki fram"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA tapaði gegn Val á heimavelli í Bestu deildinni í dag. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KA 0 -  1 Valur

„Frekar góð frammistaða hjá KA liðinu í dag. Þeir skjóta í stöng og boltinn dettur beint fyrir þá, svo skutum við í stöng og þá dettur boltinn ekki fyrir okkur. Ég er ánægður með spilið að mörgu leyti. Við þurftum að hugsa meira fram á við í fyrri hálfleik þegar við unnum boltann," sagði Haddi.

„Heilt yfir gerðum við nóg til að skora, áttum tuttugu skot og komumst oft á síðasta þriðjung. Við þurfum að vera beittari og hættulegri þar. Boltinn dettur tvisvar fyrir okkur í seinni hálfleik en við náum ekki að koma honum á markið. Manni líður eins og maður átti ekki að tapa þessum leik. Varnarleikurinn er góður en við þurfum að fá meira bit fram á við."

Haddi hefur oft verið mjög ósáttur með framlag leikmanna í sumar en var sáttur í dag.

„Þetta er sennilega besta frammistaðan á heimavelli og þess vegna er svekkjandi að tapa. Manni líður miklu betur með svona tapleiki heldur en þegar menn leggja sig ekki fram. Mér fannst hugsunin hvernig við pressuðum ganga fullkomlega upp. Erum á heimavelli og náum tuttugu skotum á markið og við áttum að skora."
Slapp
banner
banner