Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nýta ekki kaupréttinn á Ísaki Andra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danska félagið Viborg hefur ákveðið að nýta ekki kaupréttinn á Ísaki Andra Sigurgeirssyni en hann var á láni hjá félaginu fyrri hluta árs frá sænska félaginu Norrköping.

Ísak (2003) náði ekki að festa sig í liðinu og meiðsli hafa svo haldið honum frá vellinum síðustu mánuði.

Alls spilaði Ísak einungis sex leikjum fyrir Viborg og byrjaði einungis einn fyrir Viborg sem endaði í 5. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.

„Ísak var fenginn inn á síðasta degi félagaskiptagluggans, hann átti að hjálpa okkur í vor, þegar við þurftum á því að halda eftir nokkur meiðsli á vængstöðunum. Hann stóð sig vel í byrjun, en því miður meiddist hann og þurfti að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna, og því höfum við ekki séð hann á vellinum á lokakafla tímabilsins."

„Því miður var þetta ekki dvölin sem hvorki hann né við höfðum vonast eftir, en hann hefur verið góður í hópnum og við óskum honum alls hins besta í framtíðinni. ,"
segir Mads Agesen sem er yfirmaður fótboltamála hjá Viborg.

Ísak kom til Viborg eftir að hafa spilað vel í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, sérstaklega fyrri hluta tímabilsins.
Slapp
banner
banner