Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
banner
   fös 22. maí 2026 20:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík
Haraldur Freyr: Mögulega okkar versta frammistaða í sumar
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður náttúrulega bara mjög vel með þrjú stig og að halda hreinu," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 1-0 sigur gegn Þór í Bestu deildinni í dag.

„Þetta var erfiður leikur. Við byrjuðum hann mjög vel, sköpum fullt af góðum stöðum og skorum gott mark. Svo jafnast leikurinn út og þetta verður mikið fram og til baka."

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  0 Þór

„Í raun erum við heppnir að þeir klúðri þessu víti og við tökum þrjú stig."

Þetta var fyrsti sigur Keflavíkur á heimavelli í sumar en ekki besta frammistaðan að mati þjálfara liðsins.

„Ég myndi mögulega segja að þetta sé versta frammistaða okkar í sumar. En heilt yfir höfum við verið fínir og fín frammistaða. Við ætlum að halda því áfram."

„Fyrsti sigurinn á heimavelli er kominn í hús og það er jákvætt."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner