Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Bernardo Silva vill vera nær fjölskyldunni
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn Bernardo Silva er á förum frá Manchester City þegar samningurinn rennur út í sumar.

Silva hefur verið lykilmaður í ógnarsterku liði Man City undanfarin níu ár og breyttist það ekkert á leiktíðinni sem er að líða. Hann hefur komið við sögu í öllum deildarleikjum tímabilsins og er í heildina með 459 leiki að baki fyrir félagið.

Silva, sem verður 32 ára í ágúst, getur ráðið hvert hann fer næst. Stórveldi innan og utan Evrópu hafa mikinn áhuga á honum og verður spennandi að fylgjast með hvaða lið hann velur. Hann vann allt mögulegt á dvöl sinni hjá City.

„Mér líður eins og það sé kominn tími á nýja áskorun. Ég hef afrekað allt mögulegt hérna. Mér líður eins og okkar kynslóð hafi skilað sínu. Núna er kominn tími fyrir ungu strákana að skína, þeirra tími er kominn. Fyrir mig er þetta tækifæri til að færast nær fjölskyldunni," segir Silva, sem hefur þó útilokað endurkomu í portúgalska boltann.

„Ég hef verið fjarri fjölskyldu minni í 12 ár og ég vil vera aðeins nær þeim. Ég þrái líka nýja áskorun. Ég þarf á breytingu að halda."

Silva hefur verið orðaður við ýmis félagslið víðsvegar um heim en miðað við þessi ummæli virðist hann vera á leið til Spánar.

Atlético Madrid hefur verið orðað við hann en fjölskylda Silva býr í Lissabon, höfuðborg Portúgal. Það verður því að teljast líklegasti áfangastaðurinn enda tekur það rétt rúmlega klukkustund að fljúga á milli höfuðborganna á Íberíuskaganum.

Silva hefur einnig verið orðaður við AC Milan, Juventus og Chelsea meðal annars en miðað við nýjustu ummæli leikmannsins virðist Atlético vera líklegasti áfangastaðurinn.

   21.05.2026 08:00
Atlético horfir til Cucurella og Bernardo Silva

Slapp
banner
banner