Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 09:53
Kári Snorrason
Viktor Bjarki með hækju í fögnuðinum - Japansleikurinn í hættu?
Viktor fór meiddur af velli í gær.
Viktor fór meiddur af velli í gær.
Mynd: EPA
Viktor Bjarki Daðason neyddist til að fara af velli á 37. mínútu vegna meiðsla í umspilsleik FCK og Bröndby um Evrópusæti í gær.

FCK hafði betur í framlengingu og því er ljóst að liðið leiki í Sambandsdeildinni á næsta ári.

Liðið fagnaði með stuðningsmönnum eftir leik en í myndbandi sem FCK birti á samfélagsmiðlum mátti sjá Viktor Bjarka styðjast við hækju.

Viktor var valinn í fyrsta sinn í A-landsliðshóp á dögunum er hann var valinn í hópinn sem mætir Japan í æfingaleik þann 31. maí.



Slapp
banner
banner