Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 22. maí 2026 21:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík
Siggi Höskulds ósáttur: Skilar sér núll inn á völlinn
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður ekki vel, eðlilega," sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir 1-0 tap gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld.

Þórsarar fengu vítaspyrnu til að jafna í leikinn en voru framan af ekki að skapa sér neitt og áttu ekki marktilraun í fyrri hálfleiknum.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  0 Þór

„Við erum bara ömurlegir á síðasta þriðjung. Alltof mikið af feilsendingum, alltof veikburða í kringum teiginn og erum að reyna alltof erfiða hluti sem klikkuðu allir. Við eigum ekki skot á markið í fyrri hálfleik. Við einföldum aðeins seinni hálfleik og mætum aðeins graðari. Þegar á botninn er hvolft er þetta enn einn leikurinn þar sem andstæðingurinn er með miklu meiri gæði á síðasta þriðjungi. Á meðan það er, á meðan við tökum jafn lélegar ákvarðanir og klikkum á eins mikið af sendingum þá munum við ekki vinna einn einasta leik."

Siggi hugsaði sig ekki einu sinni um þegar hann var spurður að því hvað þyrfti að laga.

„Sóknarleikinn, bara allt. Ákvarðanartökur, grimmari hlaup, við erum að æfa sóknarleik, fyrirgjafir og hlaup inn á box en það skilar sér núll inn á völlinn. Ég þarf að endurskoða það eitthvað. Sóknarleikurinn er ömurlegur á heildina."

Þór hefur núna tapað fimm leikjum í röð.

„Það er bara fáránlegt að tapa fimm leikjum í röð. Þrjú þessara tapa eru algjör óþarfi og óþarfi að tapa hér í dag. Það skiptir engu máli hvað þú gerir og hvernig hugarfarið er ef þú skorar ekki mark, þá taparðu eða gerir 0-0 jafntefli. Ef við skorum ekki eða búum til færi erum við dauðadæmir. Ég hef miklar áhyggjur ef menn ætla ekki að reima á sig skóna og taka þessar úrslitasendingar og haft hugarfarið til að hlaupa inn í teiginn og sparka boltanum í markið. Þá hef ég miklar áhyggjur. Við þurfum að vakna með það að við þurfum að gera betur," sagði Siggi.
Slapp
banner
banner