Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   lau 23. maí 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Unglingalandsliðsmaður skrifar undir í Kórnum
Mynd: HK
Guðmundur Þórðarson (2011) hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við HK.

Guðmundur, sem er miðjumaður, gerir samning til þriggja ára.

„Guðmundur er einn af okkar strákum og kemur úr mikilli HK fjölskyldu en systir hans Kristjana spilar með meistaraflokki kvenna og faðir hans Þórður þjálfar yngri flokka hjá félaginu," segir í tilkynningu HK.

Guðmundur á þrjá leiki að baki fyrir yngri landsliðin og eitt mark. Hann var sömuleiðis í nýjasta æfingahóp U15.

„Við hlökkum mikið til að fylgjast með þessum efnilega leikmanni í framtíðinni."


Slapp
banner
banner