Adam Ingi Benediktsson var í byrjunarliði AB Kaupmannahafnar þegar liðið tryggði sér sigur í C-deildinni í Danmörku eftir 5-0 sigur á Hellerup. AB er með 11 stiga forystu á Vendsyssel þegar tvær umferðir eru eftir en Vendsyssel á leik til góða.
Mikael Neville Anderson, leikmaður Djurgarden í Svíþjóð, er að koma gríðarlega sterkur til baka eftir meiðsli. Hann hefur spilað fjóra leiki eftir að hafa verið fjarverandi síðustu sex vikur.
Hann lagði upp í fyrsta leiknum og skoraði í sínum fyrsta byrjunarliðsleik í 3-2 tapi gegn Sirius í vikunni.
Hann spilaði allan leikinn þegar liðið fékk Brommapojkarna í heimsókn í dag. Hann jafnaði metin í 1-1 eftir tæplega hálftíma leik en Brommapojkarna vann 2-1. Hlynur Freyr Karlsson var ónotaður varamaður hjá Brommapojkarna.
Brommapojkarna er í 6. sæti með 14 stig eftir níu umferðir en Djurgarden er í 7. sæti með 13 stig.
Ólafur Dan Hjaltason var í byrjunarliði Aarhus Fremad þegar liðið vann 5-0 sigur á Álaborg í næst efstu deild í Danmörku. Nóel Atli Arnórsson var í byrjunarliði Álaborg. Liðin eru með jafnmörg stig í 7. og 8. sæti fyrir lokaumferðina.
Brynjar Ingi Bjarnason kom ekki við sögu þegar Greuther Furth tapaði 1-0 í fyrri leiknum gegn Essen í umspili um sæti í þýsku B-deildinni.



