Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 22. maí 2026 23:19
Hafþór Örn Laursen
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Lengjudeildin
Magnús Már, þjálfari Aftureldingar
Magnús Már, þjálfari Aftureldingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Már, þjálfari Aftureldingar, var að vonum sáttur eftir mikinn markaleik gegn Þrótti, sem fór 4-3, Aftureldingu í vil.

Lestu um leikinn: Afturelding 4 -  3 Þróttur R.

„Ég er gríðarlega ánægður með strákana, en við skulum byrja á því að senda batakveðjur á Aron Snæ og Axel sem lenda í samstuði í byrjun og vonandi ná þeir sér sem fyrst.''

„ Þróttur er mjög öflugt lið og búnir að sýna það í byrjun móts þannig að við vissum að þetta yrði hörkuleikur og frábært að ná að klára þetta.''

Axel Óskar, leikmaður Aftureldingar, og Aron Snær, leikmaður Þróttar, lentu í ljótu samstuði sem endaði með því að þeir báðir þurftu að fara upp á sjúkrahús.

„Það fór betur en á horfðist með Axel en Aron lendir því miður mun verra í því. Axel fær skurð sem var saumaður og höfuðverk einnig þannig við tókum enga sénsa með hann en vonandi verður hann klár til að spila sem fyrst.''

„Þetta var mjög skemmtilegur leikur og sóknin á báða bóga og þeir sóttu meira eftir að við komumst yfir, mér fannst við líka verjast á löngum köflum mjög vel. Þeir skora svo tvær frábærar aukaspyrnur, og þetta verður algjör ping-pong leikur og ég vona að áhorfendur hafi skemmt sér vel.''

Maggi fór svo aðeins að ræða um stúkuna hjá Aftureldingu

„Það var leiðinlegt að leikurinn byrjaði í rigningunni og maður sá fleiri koma eftir því sem leið á leikinn, sem er skiljanlegt því við erum ekki með stúku með þaki.''

„Mér skilst að Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn sem bæði lofuðu að byggja stúku með þaki á svæðinu eru að stefna á að mynda meirihluta, þannig vonandi fáum við stúku sem fyrst því áhorfendurnir eru frábærir og þeir eiga skilið að fá stúku til að sitja í þegar það er rigning.''


Afturelding sitja í 2. sæti Lengjudeildarinnar með 10 stig, jafnir Þrótti sem er með betri markatölu. Afturelding á næst leik við Grindavík á Stakkavíkurvelli.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.





Slapp
banner
banner