Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
   fös 22. maí 2026 23:19
Hafþór Örn Laursen
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Lengjudeildin
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Livey
Sigurvin „Venni'' Ólafsson, þjálfari Þróttar, var alls ekki sáttur eftir að lið hans Þróttur tapaði 4-3 gegn Aftureldingu í kvöld., en hann sagðist að honum hafi sjaldan liðið eins illa eftir leik.

Lestu um leikinn: Afturelding 4 -  3 Þróttur R.

„Meiri partinn fannst mér við frábærir, og líklega var þetta okkar besti leikur'', sagði Venni eftir leik.

Það skyggði þó aðeins á leikinn á 12. mínútu þegar Axel Óskar, leikmaður Aftureldingar, og Aron Snær, leikmaður Þróttar, lentu í samstuði. Úr því þurfti að hringja á sjúkrabíl fyrir báða aðila, en óhætt er að segja að Axel hafi lent betur í þessu samstuði en Aron.

„Við vitum ekki stöðuna á Aroni, því miður. Þetta var hræðileg árás frá Axeli, varnarmanni Aftureldingar, sem hann hefði átt að fá rautt fyrir það að senda minn leikmann upp á sjúkrahús.''

„Við vorum eitthvað pirraðir út í dómarann en ég sagði við strákana í hálfleik að við ætluðum ekki að falla í þann pitt og vorkenna okkur. Okkur fannst vítaspyrnudómurinn mjög skrýtinn en það er „loser attitude'' að fara inn í klefa og væla yfir hvernig er dæmt á móti okkur. ''

Við þurfum líka að spila það vel að það skipti ekki máli að þó við fáum einhverja dóma sem okkur finnast ekki sanngjarnir. Við jöfnum sanngjarnt fannst mér og vorum ofan á. Strákarnir sýndu frábæran leik og ég er sorgmæddur fyrir þeirra hönd að hafa ekki náð stigi úr þessum leik.
.

Magnús Þórðarson fékk annað gult spjald á 89. mínútu fyrir klaufalegt og óþarfa brot.

„Magnús veit að þetta var óþarfi og við erum búnir að ræða það. Hann rétt stígur yfir þessa línu þar sem við viljum sýna hamagang og ástríðu''.

„Hann setur hendina í andlitið á honum og andlitið er yfirleitt eitthvað stórhættulegt svæði þar sem allir fá gult eða rautt fyrir nema þegar þeir eru skallaðir inn á sjúkrahús, þá er ekkert spjald.''


Eftir þennan leik situr Þróttur í efsta sæti Lengjudeildarinnar með 10 stig, jafnir Aftureldingu. Þróttur á svo heimaleik í næstu umferð gegn Gróttu.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
banner
banner
banner