Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   fös 22. maí 2026 18:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rashford þakklátur: Ekki skot á Man Utd
Mynd: EPA
Marcus Rashford hefur birt færslu á samfélagsmiðlum til að útskýra fyrri færslu sem hann birti á Instagram eftir að hann var valinn í landsliðshóp Englands fyrir HM

„Sérstakar þakkir til Unai (Emery), Hansi (Flick), Thomas (Tuchel), Aston Villa og Barcelona fyrir að hafa trú á mér þegar á móti blés," skrifaði Rashford.

Rashford er á láni hjá Barcelona frá Man Utd en hann hefur einnig verið á láni hjá Aston Villa. Hluturnir hafa ekki gengið upp hjá honum hjá United og hann minntist ekki á félagið í færslunni.

„TIl að útskýra Instagram færsluna þá er þetta ekkert skot. Ég er stuðningsmaður Man Utd og það er enn þannig," skrifaði Rashford.

„Ég var að sýna þakklæti til félaganna og þjálfaranna sem ég hef unnið með síðustu 18 mánuði, þeir hafa gegnt stóru hlutverki í þessu vali á landsliðshópi Englands.“
Slapp
banner
banner