Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 12:15
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Ronaldo lyfti bikarnum sem meistari í Sádi-Arabíu
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo, andlit deildarinnar í Sádi-Arabíu, lyfti meistarabikarnum í fyrsta sinn í gær.

Al-Nassr keypti Ronaldo í desember 2022 en loksins vann hann meistaratitilinn í Sádi-Arabíu.

Ronaldo skoraði tvívegis í 4-1 sigri gegn Damac í lokaumferð deildarinnar og tryggði Al-Nassr þar með toppsætið og fyrsta meistaratitil sinn síðan 2019.

Ronaldo skoraði nýlega sitt 100. mark í sádi-arabísku deildinni og loksins hefur félagið náð að landa titlinum sem hann var fenginn til að ná í.

Hér má sjá myndir og myndband af Ronaldo lyfta meistarabikarnum.


Slapp
banner