Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
banner
   fös 22. maí 2026 22:37
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður ekkert sérstaklega vel, þetta var erfiður leikur og ekki gott tap" sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar eftir 1-0 tap á heimavelli gegn Fram í Bestu Deildinni.


Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  1 Fram

Var frammistaðan léleg í dag?

„Ekki eitthvað hræðileg, það vantaði helst orku og spirit, það er það helsta. Að einhverju leyti getur það tengst sjálfstrausti og eitthvað svoleiðis, ég held að það hafi helst vantað. Menn voru að leggja sig fram og maður var að reyna og við verðum að finna einhverja leið til að lyfta því upp."

Eitt stig í sex leikjum, eru þetta sömu vandamálin að koma aftur og aftur?

„Nei, það finnst mér ekki. En þegar það er, þá liggur vandinn yfirleitt á sama stað og það er eitthvað sem við þurfum að skoða."

Hefurðu áhyggjur af stöðunni?

„Já já, það væri skrýtið að gera það ekki. Ég held að staðan sé orðin frekar slæm og það er bara ljóst."

Er komin á pressa á þig?

„Örugglega. Ég svara því eins og fyrir tveimur vikum eða þremur vikum eða hvenær sem ég fékk þessa spurningu fyrst. Ég vil gera betur, ég vil hjálpa liðinu gera betur og hvort að önnur pressa komi, skiptir minna máli. Það er pressa innan frá mér og okkur sem hópur er bara næg. Þannig já það er pressa."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner